..::ÁttAtíuOgfjÖgur CrEwiÐ::..

29.01.2007 23:24:02 / Liquid

asdfjklæ

Jii þetta er nú búið að vera meira helvítis vesenið að koma sér í að blogga. Ég sem var búin að lofa Láru Maríu að skrifa innan tveggja daga. Æ Lára María mín, sorrí beibí.
Allt gott að frétta af mér. Er bara við tölvuna í draslinu í herberginu mínu í Stykkishólmi allan daginn, tótallí boríng.
Hápunktur dagsins í dag var spjall við foreldra mína um muninn á bruðum, kruðum og ruðum.
Það kemur meira síðar, þið getið kannski skrifað e-ð í millitíðinni?
Halla

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 22:36:10 / Laura

Comeback!!


Jæja crewið mitt kæra!;)

Það er komið rúmlega hálft ár síðan ég skrifaði eitthvað inn á þessa síðu en nú kem ég inn með allsvakalegt comeback!! Leifur bróðir er orðinn öflugari en ég í bloggfærslum og það gengur ekki lengur...
En eftir margar tilraunir til að ná hópnum saman, ætla ég að nýta mér bloggsíðuna okkar góðu - ég hef tröllatrú á tækninni og er viss um að hún kippi þessu öllu í liðinn:haha:
Við erum allavega ekki lengur í þremur heimsálfum eins og í haust, Halla reyndar á leið til Danaveldis en ekki fyrr en 11. febrúar svo við höfum enn 24 daga til stefnu!

Það er reyndar nokkuð mikið að gera framundan hjá mér, er á námskeiði næstu tvær helgar svo ég kemst ekkert út fyrir borgarmörkin. En hvernig er þetta hjá ykkur??? Gefð nú kommentaþörfinni lausan tauminn og látið heyra í ykkur;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 15:56:21 / 84crew

† Minning †

Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 22:31:16 / Liquid

Kínalía

Upplifunin í Kína og Ástralíu hefst á mánudaginn. Á meðan ég verð þar þá getið þið fylgst með mér hér: www.hallabje.blogspot.com
Ef þið viljið kveðja mig þá verð ég í bænum um helgina og 6941520.
Annars vona ég að þið hafið það gott í kuldanum og við sjáumst síðar.
Halla bjé

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 10:51:41 / elinraf

Komin til kóngsins Köben!!!

jamm mar komin með nýtt  blogg á meðan mar er í Köben og það er aldrei að vita nema mar verði duglegur að blogga...hef ekki verið það á þessari síðu en hver veit??

www.palads.bloggar.is

Þetta er Elín sem talar frá Köben;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 15:34:44 / Liquid

30. ágúst 2006

Ég er komin í almennilegt netsamband, eyði nú mörgum klukkustundum á dag í uppsafnaðan skyldublogglestur. Ég er í fríi. Ég er að reyna að ná mér eftir verstu hugmynd sem ég hef fengið. Hef fengið nýja hugmynd: fara í ferðalag. Þetta gæti þó verið jafnvel verri hugmynd þar sem ég fer ein... Hverjum langar með? Hver er þarf ekki peninga eða gráðu? Einhver?
Ég dýrka að vera í fríi. Ég gerði ekkert í sumar nema vinna. Ég fékk 4 frídaga, þeir fóru í svefn, sjónvarpsgláp og laaaangar sturtur. Vitið þið hvað það er gaman að fara í langar sturtur? Þurfa ekki að spara vatnið? Það er klikkað.
Svo já núna í fríinu þar sem ég hef ótakmarkað magn af vatni þá hef ég það bara ágætt, jahh nema að strákurinn sem ég er skotin í flutti til Margrétar Þórhildar - hún er víst svo fokking sexý.
Annars er virðist þessi síða að vera að deyja. Eigum við að gera e-ð í því?

Ætla í sturtu,
Halla bjé

» 6 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 21:13:34 / Laura

Ég er að fíla þetta sumar!!:)

Var að setja inn myndir frá helginni, við fórum fjórar vinkonur úr skólanum og gengum yfir Fimmvörðuhálsinn. Enduðum síðan í Þórsmörk og vorum þar um helgina.
Annars er bara gott að frétta af mér, held ég nái að framkvæma flest allt sem var á "to do listanum" þetta sumarið!! Allar helgar nánast planaðar, m.a. búin að kaupa mér línuskauta, Hallgeirsey á næstu helgi og svo er það Mallorca 15. ágúst... allt að gerast!:haha:

Smá myndasería frá helginni;)












» 12 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 10:47:25 / elinraf

hehe..

Click for a random picture!

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 18:10:03 / Liquid

22.mæ

Ernir Hrafn Arnarson skrifaði undir samning við Val - finnst einhverjum öðrum þetta fyndið?...

Gaman er að koma í Keflavík, kvöldin þar þau eru engu lík. (Maður fær ekki diss frá stelpum frá Sandgerði sem endar svo á "þú ert samt mjög sæt" á hverjum degi!).

Ég er að reyna að pakka. Vantar þig rúm, snyrtiborð eða ísskáp í sumar?

Hvenær ætlar þú að koma í Flatey?

Ég er svo helvíti djjollííí þessa dagana, það er bara fáránlegt.

Lifið í ljósi en ekki í fjósi,
Bje-ið



» 4 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 01:22:25 / Liquid

Þriðjudagskvöld - fyrir miðnætti!

Ég fór með Ingibjörgu systur á tóleika í Fríkirkjunni í kvöld. Þetta voru nú meiri krútt tóleikarnir, alveg krútt eftir krútt eftir krútt. Svo var ég orðin svo svöng að ég ákvað að fá mér eitthvað ógeðis í tíuellefu. Rölti svo á Lækjartorg, settist skýli og fékk mér að éta þetta líka ógeðis. Að skýlinu kemur svo drukkinn maður í lakkskóm og ljósum buxum, hann stoppar fyrir utan og horfir á mig. Ég hugsa auðvitað það sem ég hugsa alltaf þegar einhver horfir á mig ("ekkitalaviðmig, ekkitalaviðmig, ekkitalaviðmig" ). En jújú hann kemur til mín, hneppir frá leðurjakkanum og heldur honum opnum með því að setja hendur á mjaðmir, horfir svo á mig og segir: "jájá". Svo stendur hann bara þarna svona 20 cm frá mér og horfir á mig borða langlokuógeðið. Mér var farið að finnast þetta frekar óþægilegt og bað þess að strætóinn myndi nú koma. En neinei, þegar ég er í miðjum bita grípur kallinn um klofið á sér og otar því í áttina að mér (og hann var stutt frá mér fyrir). Ég náði loksins að finna e-ð semi ókurteist til að segja og hann hætti en stóð ennþá þarna. Þá stóð ég upp og fór út (þar sem einhverjir strákar stóðu), stuttu seinna kemur hann á eftir mér setur hendur á mjaðmir og segir "jájá". Og í því kemur strætó, en auðvitað ekki minn strætó heldur strætóinn sem allir hinir voru að bíða eftir. Þá þorði ég ekki lengur að vera þarna og náði mér í taxa.

Svo er ég líka með æluna í hálsinum eftir þetta ógeðis.

Fr.,
Halla bjé

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 15:06:14 / Liquid

Helgin

Ojj ojj ojj!!!!
Ég var búin að skrifa langa færslu um próflokasdjammshelgina, en svo bara hætti Firefox allt í einu. Helvítis. Ég nenni ekki að skrifa aftur svo ég segi bara:

Föstudagur:







Myndirnar eru undir "Höllumyndir" hér til hliðar.

Sorrý Heimir að við borðuðum matinn þinn..

Laugardagur:
Lélegustu dansarar Íslands og gellan að missa sokkabuxurnar niður fyrir pilsið.

Bömmer helgarinnar: Svona 50 sms sem ég sendi...


Halla bjeeee


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 14:50:48 / Liquid

mææspeeeiiiis

Já ég er í prófum.


Fyrir mörgum mörgum vikum skráði ég mig inn á  myspace og lengi vel átti ég bara tvo vini, Tom og Ástdísi. Ekki að það sé ekki nóg - það er bara frekar leim. Ég reyndi þó að fá Hrefnu sem vin minn en hún hefur ekki samþykkt mig (eins og það sé ekki nóg að hún yfirgefi mig!). Svo í gær þegar ég fékk fjórða vin min á myspace ákvað ég að nú þyrfti ég að lúkka kúl, þetta væru ekki bara vinir hennar Ástdísar sem vissu af mér. Svo ég fór og leitaði mér að vinum á myspaceinu, fann fáa en góða. En mig langar í fleiri svo ég bið ykkur kæru lesendur að adda mér ef þið eruð með myspace. Fyrir kúlið mitt, það er það mikilvægasta í heiminum.

Bliiis,
myspace.com/hallabje

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 15:44:06 / Laura

Nennigginennigginenniggi!

Ég lykta eins og kókoshneta eftir Smáralindarferðina okkar Höllu í gær. Það klikkar ekki að fara á búðarráp eftir óskemmtileg próf. Sjálfsvorkunnin í hámarki og ég keypti mér furðulegustu hluti sem ég annars aldrei tími að kaupa mér.

Ég nenni ekki að læra varmafræðina, næ engri einbeitingu. Er að bíða eftir að marilov klári sitt próf, við ætlum að reyna að gera gott úr þessum lærdómi saman um helgina. Ég ætla að flytjast búferlum upp í Grafarholt með expressóvélina mína, hún fylgir mér allra minna ferða þessa dagana.

Gleðin ríkir á Ásgarði líkt og í Granaskjólinu þessa dagana.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13