..::ÁttAtíuOgfjÖgur CrEwiÐ::..

17.05.2006 01:22:25 / Liquid

Þriðjudagskvöld - fyrir miðnætti!

Ég fór með Ingibjörgu systur á tóleika í Fríkirkjunni í kvöld. Þetta voru nú meiri krútt tóleikarnir, alveg krútt eftir krútt eftir krútt. Svo var ég orðin svo svöng að ég ákvað að fá mér eitthvað ógeðis í tíuellefu. Rölti svo á Lækjartorg, settist skýli og fékk mér að éta þetta líka ógeðis. Að skýlinu kemur svo drukkinn maður í lakkskóm og ljósum buxum, hann stoppar fyrir utan og horfir á mig. Ég hugsa auðvitað það sem ég hugsa alltaf þegar einhver horfir á mig ("ekkitalaviðmig, ekkitalaviðmig, ekkitalaviðmig" ). En jújú hann kemur til mín, hneppir frá leðurjakkanum og heldur honum opnum með því að setja hendur á mjaðmir, horfir svo á mig og segir: "jájá". Svo stendur hann bara þarna svona 20 cm frá mér og horfir á mig borða langlokuógeðið. Mér var farið að finnast þetta frekar óþægilegt og bað þess að strætóinn myndi nú koma. En neinei, þegar ég er í miðjum bita grípur kallinn um klofið á sér og otar því í áttina að mér (og hann var stutt frá mér fyrir). Ég náði loksins að finna e-ð semi ókurteist til að segja og hann hætti en stóð ennþá þarna. Þá stóð ég upp og fór út (þar sem einhverjir strákar stóðu), stuttu seinna kemur hann á eftir mér setur hendur á mjaðmir og segir "jájá". Og í því kemur strætó, en auðvitað ekki minn strætó heldur strætóinn sem allir hinir voru að bíða eftir. Þá þorði ég ekki lengur að vera þarna og náði mér í taxa.

Svo er ég líka með æluna í hálsinum eftir þetta ógeðis.

Fr.,
Halla bjé
Halla Margrét skrifaði
Almáttugur en viðurstyggilegt!! Ég hefði bara tekið hvaða strætó sem er... Ertu fegin að vera að sleppa úr borg perverta, dóps og hnífa?
Sólveig skrifaði
ég hefði einmitt bara stokkið upp í næsta strætó, eða taxa, what ever was closer :) Plan b hefði svo verið að gubba ógeðisinu yfir gaurinn :p
Halla bje skrifaði
fegin og ekki fegin. það verður gott en mig langar ekkert. fara heim og heiman... maður lendir líklega ekki í þessu í flatey já ég hefði átt að æla þessu ógeði :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.